Frankie
13.03.2007 15:51:43 / yngvi

Ruby Ruby Ruby

Hvernig yrði ríkisstjórn VG og xD. Kalt mat:

 Samstaða milli flokkanna:

Að neita að einu sinni skoða hvaða hagsmuni Ísland hefði af inngöngu í ESB.

 Ósamstaða:

Velferðarmál
Umhverfismál
Nýja stjórnarskrárákvæðið
Samgöngumál
Jafnréttismál

Leiða má líkur að því að stjórnarsáttmálinn yrði frekar rýr og furðulegur sambræðingur ef farið væri út í það.

 Go for it! ;)

 Adiós amigos

Lag:

Ruby- Kaiser Chiefs

Kvikmynd:

Perfume


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.03.2007 18:43:30 / yngvi

Get out of here

Vil benda á skemmtilega pólítíska grein eftir Hallgrím Helga:

 http://visir.is/article/20070312/SKODANIR04/70312041

 Svo vil ég líka benda á syrpu með George Oscar Bluth (GOB) úr Arrested Dev:

 http://www.youtube.com/watch?v=yyyIVzX4l1w


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.01.2007 00:54:00 / yngvi

Taj vissi þetta allan friggin' tímann!!

Taj Burrow sagði: ,,Þú færð ekki það sem þú biður ekki um!''

Yngvi segir líka:  ,,Þú færð fokkin ekki það sem þú biður ekki um!!''

Chuck Norris myndi segja: ,,That's damn right. I love you guys!!!''. Og Chuck Norris hefur ALLTAF rétt fyrir sér.

Annars var ég að skoða frekar feitt stöff sem my buddy Joao frá Brazil var að gera. Hann hefur verið að læra advertising í London og er búinn að setja auglýsingu sem hann gerði fyrir Cobra bjórinn, bjórinn frá Indlandi you know á YouTube. Linkurinn er hér fyrir áhugasama: http://www.youtube.com/watch?v=mtr_Z3yQMAg Og svo er næs dót á flickr útfrá blogginu hans adbook.blogspot.com í Us dálknum til höjre.

Ég er að fara á Peter, Björn and John tónleikana 27. Hver er ekki að fara á þá?

Lög:

I drive my friend - Frida Hyvönen
N.Y. - Frida Hyvönen

Bækur - An inconvenient truth - Al Gore
Aldingarðurinn - Ólafur Jóhann Ó.

ps Happy New Years guys.


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.12.2006 22:49:11 / yngvi

Golden oldies christmas classics

Við þekkjum þá alla og þessir 1940s og 1950s amerísku jólasmellir eru sígildir.

Frank Sinatra
Söngvari/Leikari/mafioso

I'll be home for christmas
Hark! All herald angels sing

Nat King Cole
Singer/jazzari

Christmas song

Bing Crosby
Bara Bing

White christmas

Bækur:

Snákar og eyrnalokkar - Hitome Kanehara (sem fékk virtustu bókmenntaverðlaun Japans 19 ára gömul, wtf!!)

Allar smásögur Leyv Tolstoy


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.12.2006 17:07:10 / yngvi

Það eru komin jól

Gleðileg Jól Buddies and Ladies.

Leiter, ég er farinn að skrifta.

Lag: Julia - Beatles
+ jólaplata Sufjan 200x - Hark

post script Fyrsti dóminóinn er fallinn í evruleiknum


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.12.2006 00:25:19 / yngvi

Status

2/5 prófum búin og það hefur gengið nokkuð prýðilega.

Annars er þessi prófatími eins og að fara á sjó, eða eins og ég ímynda mér að það sé. Það er lært nokkuð mikið, lítil samskipti við aðra en fjölskyldu og samnemendur í VRII. Þess á milli er borðað,  skoðað bloggskrif - sem eru eðlinu samkvæmt ekki gróskumikil þessa dagana vegna prófa. Ég gerði líka þá (línu)veilu að horfa á 1. þáttinn í 5.seríu af 24 tveimur dögum fyrir próf - ég hef því þurft að svala fíkninni í þetta ávanabindandi sjónvarpsefni inn á milli.

Annars fékk ég brillíant hugmynd áðan. Það hefur nokkuð verið talað um það verkfræðinámið í HR sé öllu slakara en í HÍ. Maður hefur heyrt ófá, eiginlega fjölmörg, dæmi um það að nemendur sem eigi ekki break í HÍ skipti yfir í HR og vegni ótrúlega vel og komist jafnvel á hinn svokallaða forsetalista, sem fríar frá borgun skólagjalda. Þetta á við um öll fög. Það er ekki hönd á festandi hver munurinn er á þessum deildum - en til að kasta ljósi á það datt mér í hug að tala fyrir því að koma á einhverskonar keppni milli deildanna. Þetta gæti jafnvel verið útfært með því að leyfa HR-ingum að taka þátt í hinni árlegu hönnunarkeppni Véla-og iðnaðarverkfræðinema. Samkeppni er alltaf að hinu góða - og get ég með fullum kjark sagt að HÍ myndi mölla HR.

Hitt er annars áhyggjuefni að það sé á vörum manna að auðvelt sé að komast í gegnum verkfræðina í HR og þar með raunverulega verið að gengisfella gildi verkfræðinámsins á Íslandi. Þetta er svona með hugsmunaáreksturinn milli akademískra krafna og hagnaðarsjónarmiðsins þegar skólar eru reknir með það síðarnefnda að leiðarljósi.

Lag: 

Something better change Stranglers - Kosningaskjálftalagið 2007 


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.12.2006 20:37:53 / yngvi

Úr vizkubrunni W.Churchill

I have always felt that a politician is to be judged by the animosities he excites among his opponents. Eftir Keflavíkurræðu ISG töluðu pólítískir andstæðingar hennar ekki um annað í nokkra daga. Ergo ISG er öflugur stjórnmálamaður sem menn óttast.

Never, never, never believe any war will be smooth and easy, or that anyone who embarks on the strange voyage can measure the tides and hurricanes he will encounter. The statesman who yields to war fever must realize that once the signal is given, he is no longer the master of policy but the slave of unforeseeable and uncontrollable events. Afleiðingarnar sem G.W.Bush sýpur nú seyðið af fyrir að hafa ráðist í Írakstríðið eru poetic justice. Hann er búinn að viðkenna mistök sín með að geta ekki sjálfur ráðið úr málum þar með að biðja demókrata að hjálpa sér að finna lausn á ástandinu. Bush hefði aldrei átt að verða forseti BNA.


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.12.2006 03:25:59 / yngvi

Canada could have been Great

It could've had American technology, English culture and French cuisine.

But instead it got American culture, French technology and English cuisine.

(semí O.Wilde tilvitnun)

Annars er maður að púlla Össa Skarp núna, en sá maður bloggar allan sólarhringinn og einkanlega um hánótt.

Lög:
Paris burning - St. Vincent

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.12.2006 15:09:46 / yngvi

Baltasar láttu ekki eins og þú vitir ekki hvar klósettið er!

Það virðist vera frekar mikið í tísku þessa dagana að læra undir próf. Og eins og venjulega er ég í tísku. Auttað.

Það eru skemmtileg próf framundan:

Efnisfræði - hún er í góðu
Efnafræðin - búinn að redda henni
Örtölvu- og mælitækni - já ég held ég sé með hana. Ég er svo fáranlega góður í Kirchoff að það ha´lfa væri meira en nóg.
Stærðfræðiskeining - já ég næ þessu
Hagverkfræði - ég er fæddur til að ná því prófi.


Lög:
It could be sweet - Portishead
It's a fire - Portishead
Ég held bara að Portishead sé að koma aftur í tísku

Ltr amigas
You be my wife - Borat: Stereophonic musical listenings to have been origin in moving film

» 2 hafa sagt sína skoðun

29.11.2006 01:02:35 / yngvi

Fáðu þér lýsi segir hákarlinn

Nokkrar spurningar fyrir þá sem kunna ekki að velja sér rétt lið til að halda með:

Hverjir unnu HM?

Hver var valinn besti leikmaður Evrópu?

Hvaða lið er efsta sæti í ensku?

Hverjir eru efstir í spænsku?

Laugardagurinn:

kl 21 í fríu áfengi - nettur í partíi
kl 22 í fríu áfengi - fáranlega nettur í partíi
kl 23 í fríu áfengi - geysilega nettur í partíi
kl 24 í fríu áfengi - ofurnettur í partíi
kl 01 í fríu áfengi - gífurlega nettur í partíi
kl 02 í fríu áfengi - þokkalega nettur í partí
kl 03 í fríu áfengi hjá Andrési og brósa - of nettur
kl 04 í fríu áfengi hjá brósa á Cafe cozy !! of nettur og of gagnkynhneigður fyrir crowdið.


kl 05 ólíkindatól

Ég minni á quiznostilboðið sem er 400kr fyrir miða fyrir litlum og gosi - jafngildir 850kr en mest geturðu grætt með að fá þér Black Angus (Svartan Inga) sem kostar venjulega 1020 með gosi þ.e. 620kr í hagnað takk fyrir.

Það stefnir í klassí föstudag : 15:30 á Bessastöðum kl 19:00 í sinfóníunni.

Lag:

YMCA - Village people


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.11.2006 22:48:39 / yngvi

Það skal enginn vanmeta Pálma Gunnars - fuck Nei

Ég átti einn ánægjulegasta föstudag sem ég hef upplífað núna bara fyrir nokkrum dögum. Dagurinn byrjaði kl 0800 og fyrir stafni var að klára 30% verkefni frá byrjun á einum degi. Þetta varð auðvitað eitt af mestu mixxum sem sögur fara af - en slagaði þó upp í 40 bls. Ég var þannig til kl 02:30 aðfaranótt laugardagsins, en þetta kláraðist samt í góðum fíling þar sem meistaraflokkur stórveldisins KR sendi okkur kippu af bjór til að fagna lokunum. Ég elska þetta félag.

Þar sem það er ljóst að einhverjir hafi tekið því alvarlega þegar ég fullyrti að ég hyggðist stofna keðjubréfaenterprise þá skal benda á það að það er rangt. Ég er að fara stofna pýramídafyrirtæki. Viðskiptaáætlunuin er komin langt á veg og verið er að klára kynnigninarpakkann fyrir fjárfesta. Bíðiði spennt.

Á laugardaginn kíktí ég á frumsýningu á heimildarmyndinni Sófakynslóðin sem er eftir Áslaugu og Grétar. Hún var nett. Ég kíkti svo í vinnuna og þar á eftir í frumsýningarpartý og svo partí hjá Heklunum það var reyndar nett. En já nenni ekki að blogga - metnaðurinn er ekki eins skínandi og hjá ónefndum manni í Orange County.

Ble

Lög

Þorparinn - Það skal enginn vanmeta Pálma Gunnarson. Þótt hann sé væminn á köflum þá virkar það. Þetta er svona hip-popp þessa dagana myndi ég segja.


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.11.2006 23:35:34 / yngvi

Quizzarinn klikkar ekki



Kallinn er að bjóða upp á miða á Quizzarann á fáranlega góðu verði. Lítil quizzi og gos á 400 kjall. Hvernig fer kappinn að þessu? Ég er bara svona fáranlega nettur. Venjulegt verð er meira en 100% hærra en 400 kjall þannig þetta er meira en 50% afsláttur.

Kallinn er allur í bissnessinum þessa dagana. Ég er að stofna svona keðjubréfa-fyrirtæki með vel völdum einstaklingum. Sendið 500 kjall á efsta aðilann á listanum og ykkar neðst og sendið á 5 aðila og þið fáið það margfalt tilbaka.

Lisitinn

Richard Causey, fyrrv. aðalendurskoðandi ENRON - flottur gaur
Árni Johnsen - Árni you\'re my man
Yngvi Eiríks aka baukurinn

» 3 hafa sagt sína skoðun

13.11.2006 11:44:45 / yngvi

Í kjölfarið af stefnu ,,Frjálslyndra'' í innflytjendamálum.

Ég vil hér með lýsa yfir því að ég er algerlega mótfallinn hugmyndum ,,Frjálslynda,, flokksins um að hefta aðgang innflytjenda til landsins. Family first. Hér er bróðir minn:

Hann ólst upp í Brooklyn en er fluttur til landsins og vinnur hjá Nýherja.


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.10.2006 21:20:32 / yngvi

Il y a des fleurs partout pour qui veut bien les voir

Góðan og blessaðann.

Það geta fáir verið ósammála því hversu Meðmælin og Októberfest voru feit gigg. Ég vona að sem flestir hafi mætt. Á dagskránni hjá mér næstu dagana er: skólinn. Skólinn og IceMUN sem fer fram í HR í næstu viku og innfalið í því er heimsókn á engan annan en H.E. Mr. President Dr. Ólafur Ragnar Grímsson þarnæsta föstudag. Það verður gaman að kíkja aftur á Bessó. Svo er ískyggilega farið að styttast í Prufungen. Shitt.

Ég er búinn að vera allt of slappur upp á síðkastið við að kynnast nýrri tónlist. Sorrí punks.

ps. ég stundaði hleranir á árunum 1990-1995

pps Við ManU menn ættum að vera ánægðir með allt í þessari blogfærslu

» 1 hafa sagt sína skoðun

06.10.2006 16:47:49 / yngvi

Meðmælin næsta fimmtudag 12.október á Austurvelli kl 15:30

Be there puds ...

Lög Marquee Moon - Television 


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6